- Skoðaðu lýsinguna á hegðun Egils í höll Aðalsteins konungs. Hann horfir ekki upp, skýtur augunum sitt á hvað, dregur sverðið sitt hálfa leið úr slíðrinu en rekur það svo harkalega niður aftur. Hvað segir þessi lýsing um líðan Egils?
- Getið þið sýnt hvernig ykkur líður með svipbrigðum og án þess að segja neitt? Er alltaf hægt að sjá hvernig skapi fólk er í?
- Hvað er það sem kætir Egil mest ef miðað er við þennan kafla? Rifjið líka upp ferðina til Kúrlands. Sumir segja að víkingarnir hafi verið ótrúlega gráðugir í fé. Getur það passað?