Á þessum síðum höfum við fengið merka menn og konur til að blogga um atburði í lífi sínu. Þessar bloggsíður eru bæði til fróðleiks og gamans.
Víkingablogg

Guðrún Ósvífursdóttir skrifar:
Úff, ég er bara 15 en samt þarf ég að flytja til þessa leiðindagaurs sem pabbi lét mig giftast. Hann er nú meiri auminginn, – sko hann Þorvaldur, ekki pabbi. Ég vil hafa mína menn hetjulegri og hugrakkari. En hann … Lesa meira
Guðrún Ósvífursdóttir skrifar:
Gestur Oddleifsson er alveg snar. Hann segir að draumarnir mínir merki að ég muni giftast fjórum sinnum. Mig langar bara ekkert til að giftast og alls ekki fjórum sinnum. Ég vona að pabbi fari ekki að gifta mig strax.