Rifjaðu upp söguna um leið og þú svarar þessum spurningum skriflega. Þær reyna á lesskilning, það er hversu vel þú skildir textann sem þú last. Auðvitað reyna þær líka á minnið – og færni þína í að leita að upplýsingum því þú skalt fletta því upp í bókinni sem þú manst ekki. Ef þú svarar spurningum úr hverjum kafla vel og vandlega þá skilurðu söguna í heild betur.
1. kafli
- Lestu lýsinguna á Gunnari á Hlíðarenda. Lýstu honum svo með þínum eigin orðum.
- Lestu lýsinguna á Hallgerði. Lýstu henni svo með þínum eigin orðum.
- Hvar bjuggu Gunnar og Hallgerður?
- Hvernig vopn átti Gunnar?
- Hvað varð um fyrri eiginmenn Hallgerðar?
- Hvað sagði frændi Hallgerðar um augun í henni?
- Hvar hittust Hallgerður og Gunnar fyrst?
2. kafli
- Hver var besti vinur Gunnars á Hlíðarenda?
- Lestu lýsinguna á Njáli og lýstu honum svo með þínum eigin orðum.
- Hverjir bjuggu á Bergþórshvoli?
- Hvenær fór Gunnar ekki að ráðum Njáls?
- Hvernig kom Hallgerði og Bergþóru saman?
- Hvað gerðu Gunnar og Njáll þegar eiginkonur þeirra höfðu látið drepa
húskarla hvor annarrar?
3. kafli
- Fyrir hvað stríddu menn Njáli?
- Hvernig frétti Bergþóra af vísunum sem Hallgerður lét yrkja um Njál?
- Hvað eru farandkonur?
- Skoðaðu lýsinguna á Skarphéðni þegar Bergþóra segir honum frá þessum vísum. Hvernig heldurðu að honum líði?
- Hverju svarar Skarphéðinn þegar Njáll spyr hvert hann ætli?
- Hvað eru Skarphéðinn og bræður hans í raun og veru að fara að gera?
4. kafli
- Hvers vegna var ekki til nægur matur á Hlíðarenda?
- Hvert var hlutverk húsmóðurinnar á bænum? (Skoðaðu hliðarefnið).
- Hvert var hlutverk húsbóndans? (skoðaðu hliðarefnið).
- Til hvaða ráða greip Hallgerður þegar hún sá að ekki var til nægur matur?
- Hvernig brást Gunnar við þegar hann uppgötvaði hvað hún hafði gert?
- Hvað fannst Hallgerði um þessi viðbrögð?
5. kafli
- Hvers vegna var Otkell reiður út í Gunnar?
- Hvað gerði Otkell við Gunnar?
- Hvað sagði Otkell sem Gunnari þótti svo móðgandi?
- Hver fór með Gunnari til að berjast við Otkel?
- Hvernig fór bardaginn við Rangá?
6. kafli
- Hvað var merkilegt við hundinn Sám?
- Hvers vegna vildi Þorgeir ráðast á Gunnnar?
- Hvernig fór bardaginn?
- Hvernig lauk þessu máli á Alþingi?
- Hvernig brást Gunnar við dómnum?
7. kafli
- Hvers vegna mega óvinir Gunnars ráðast á hann?
- Af hverju verða óvinirnir að losna við hundinn?
- Hvað kom fyrir manninn sem sendur var til að kanna hvort Gunnar væri heima?
- Hvernig ætlaði Gunnar að laga bogann eftir að strengurinn slitnaði?
- Hvernig brást Hallgerður við þegar Gunnar bað hana um hárlokk?
- Hvernig lauk bardaganum?
8. kafli
- Hvers vegna kenndi móðir Gunnars Hallgerði um dauða hans?
- Hvert fluttu Hallgerður og Grani sonur þeirra Gunnars?
- Hvað sagði Gunnar í vísunni sem Skarphéðni og Högna heyrðist hann kveða í haugnum?
- Hvert sigldu Njálssynir eftir þetta?
- Hver kom þeim í vandræði í Orkneyjum og hvernig hefur hann komið við sögu áður?
- Hverjum kynntust Njálssynir í ferðinni?
9. kafli
- Fyrir hvað vildi Skarphéðinn fá bætur frá Þráni?
- Hvernig móttökur fengu Skarphéðinn og menn hans hjá Þráni og Hallgerði? Hvað gerðist?
- Hvernig brást Bergþóra við þegar synir hennar sögðu frá móttökunum?
- Hvers vegna vildi Bergþóra ekki að Njáll heyrði til hennar þegar hún hvatti
syni þeirra til hefnda? - Hvernig voru bræðurnir og Kári klæddir þegar þeir lögðu af stað? Lýstu
vopnunum líka. - Hvenær áður hafði Skarphéðinn sagst ætla í sauðaleit? (Leitaðu í 3. kafla).
- Hvernig náði Skarphéðinn að koma Þráni á óvart?
- Hvað féll niður á ísinn þegar Þráinn dó?
- Skarphéðinn sagði „Tekið hef ég hvolpa tvo“. Hverjir voru hvolparnir?
- Hvað gerði Skarphéðinn við unglingana og hvers vegna?
- Hvernig brást Njáll við fréttunum af dauða Þráins?
10. kafli
- Hvernig reyndi Njáll að koma í veg fyrir hefnd eftir víg Þráins?
- Hver var Mörður?
- Hvað ráðlagði faðir Marðar honum að gera?
- Hvað var Höskuldur að gera þegar Skarphéðinn og félagar réðust á hann?
- Hvernig brást Njáll við þegar hann heyrði af vígi Höskuldar? – Hvað
sagði hann? - Hverju spáði Njáll að myndi gerast?
11. kafli
- Af hverju grét Hildigunnur?
- Hvað vildi Flosa gera til að hjálpa Hildigunni við eftirmál vígsins?
- Hvernig eggjar Hildigunnur Flosa til hefnda?
- Hvers vegna gengur Flosa illa að safna liði gegn Njálssonum?
- Hvaða unglinga fékk Flosi í lið með sér?
12. kafli
- Hvað merkir orðið váboði? (Skoðaðu hliðarefnið).
- Hvað sagði Bergþóra að yrði til marks um að eitthvað hræðilegt myndi gerast?
- Hvers konar sýnir sá Njáll?
- Hvar vildi Njáll verjast?
- Hverju lét Skarphéðinn Kára lofa sér?
13. kafli
- Hvaða tvo slæmu kosti sagði Flosi að lið hans hefði?
- Hvers vegna varð Skarphéðinn reiður þegar hann heyrði í Grana Gunnarssyni?
- Hvað notuðu konurnar til að reyna að slökkva eldinn?
- Hverjum leyfði Flosi að ganga út úr brennandi bænum?
- Hvernig reyndi Helgi Njálsson að komast út?
- Hvers vegna sagðist Njáll ekki vilja þiggja boð Flosa um að ganga út úr bænum?
- Hver vildi verða eftir hjá Bergþóru og Njáli?
- Hvað lét Njáll breiða yfir þau þrjú svo þau fyndust aftur?
- Hvað var það síðasta sem Njáll og Bergþóra gerðu?
14. kafli
- Hvers vegna var Kári viss um að þeir Skarphéðinn kæmust óséðir út um skálaendann?
- Hvers vegna sagðist Skarphéðinn verða kátur ef Kári kæmist á braut?
- Hvernig blekkti Kári brennumennina á bæjarhlaðinu?
- Hvað gerði Skarphéðinn við Gunnar Lambason?
- Hvers vegna komst Skarphéðinn ekki út?
15. kafli
- Hvers vegna sagði Flosi mönnum sínum að búast við því versta?
- Hvernig litu lík Njáls, Bergþóru og drengsins út?
- Hvað hafði Skarphéðinn gert til að bjarga Rimmugýgi?
- Hvers vegna varð Kári að hefna brennunnar?
16. kafli
- Hvað táknaði ljónið á skildi Kára?
- Hvernig er Kára lýst í þessum kafla?
- Hvar fékk Kári húsaskjól?
- Hvaða fræga frænda átti Valgerður, kona Björns?
- Hvað ráðlagði Flosi mönnum sínum að gera?
17. kafli
- Hvað sagði Valgerður þegar Björn ætlaði að fara með Kára?
- Hvar sagði Kári Birni að vera þegar þeir réðust að óvinaflokknum?
- Hvernig fór fyrir Grana Gunnarssyni í bardaganum?
- Hvað lagði Björn til að þeir gerðu til að ná óvinunum?
- Hvernig lauk bardaganum?
18. kafli
- Hvert fór Flosi eftir bardaga Björns og Kára?
- Hvers vegna vildi jarlinn refsa Flosa?
- Hvernig kom jarlinn fram við Flosa á endanum, refsaði hann honum?
- Hvernig sagði Gunnar Lambason frá Njálsbrennu?
- Hver urðu endalok Gunnars Lambasonar?
- Hvers vegna hlýddi enginn jarlinum þegar hann skipaði að Kári skyldi handtekinn?
- Hvar fann Kári síðasta brennumanninn og hvað var hann að gera þegar hann drap hann?
- Hvert fóru Flosi og Kári að lokum?
- Hvernig voru samskipti Flosa og Kára að lokum?